Við brugðum okkur í borgina um s.l. helgi. Tilefnið var útskrift Sigrúnar Margrétar sem Bókmenntafræðingur. Mikið gleðiefni það.

Á föstudeginum fór ég með Ása á Laugavegslabb að leita að gjöf fyrir SM, það tókst með svona líka svakalega vel og aldrei þessu vant náðum við að klára þetta í einni ferð. Föstudagskvöldið ætluðum við Beggzter í bíó að sjá Brúðgumann en í bíóröðinni í Smáralindinn tók svo gríðarleg Gettu betur stemmning á móti okkur að við ákváðum að skella okku frekar á keppnina, mikið fjör mikið gaman.

 Vaknaði fyrir allar aldir á laugardeginum og fór í brunch með Ása á Vegamót, þetta er auðvitað fáránlega gott, fæ vatn í munninn við að hugsa um þetta. Skilaði Ása af mér og fór í Smáralindina með Múttu, verlsaði aðeins umfram áætlun og skellti mér svo heim í tilbúning og innpökkun fyrir útskriftarboð.

 Skemmtum okkur vel hjá Siggu Möggu, bæði fyrra og seinna partýi. Stúlkan stórglæsileg og ánægð með áfangann.

Sunnudagurinn fór í rólegheit og að losa sig við nokkra kassa og dót sem Ása lofaði okkur að geyma hjá sér (jú jú, við erum byrjuð að undirbúa flutninga.) Keyrðum norður, auðvitað stoppað á Blönduósi í gúllas hjá tengdó, vorum komin í heiðardalinn um 20:30 Brynjar gaf mér þá konudagsgjöfina…..Harðskafa eftir Arnald Indriðason, mjög ánægð með hana, las 2/3 af bókinni áður en ég lognaðist útaf.

Góð helgi að baki.

 Komandi helgi: Óli Valur og Snædís koma í heimsókn.

Fór á Mývatn með vinnuni um daginn, frábær ferð í alla staði og á Erla heiður skilin fyrir að hafa skipulagt þetta.

Mættum á Sel hótel um 18:30, beint upp á herbergi til að skipta um föt og svo niður í mat. Þriggja rétta máltíð, humarsúpa, lambavöðvi (ég fann auðvitað ullarbragðið) og súkkulaðikaka í eftirrét, allt nokkuð ljúffengt.

Kvöldinu var svo eitt í spil og söng frameftir, stórkostleg skemmtun að hlusta á Kristínu syngja dónavísur og Snjólaugu hneykslast á þeim.

Daginn eftir var farið í Go kart á Mývatni, smellti inn myndbandi af því.

Hef ekki séð annað eins fannfergi síðan ég var barn. Það er búið að kyngja niður snjó síðustu daga og öll snjómoksturstæki á svæðinu á overload.

Var á leið heim úr vinnu áðan, keyri niður Þórunnarstrætið og ætla mér að beygja yfir það og inn á Klettastíginn…ekki í boði vinkon metersháir ruðningar á milli akreina, kjell fyrir.

Erla er nú á leiðinni til mín á sínum fjallabíl til þess að flytja mig á Mývó eins og Barbara komst svo skemmtilega að orði.

Hringdi í Erlu fyrr í dag til þess að láta í ljósi efasemdir mínir um færð þarna austur, það kom þrúgandi þögn í símann og hún kvaddi og sagðist hringja aftur. Á þeim tíma hringdu bæði Barbara og Andrea til þess að peppa mig upp gegn veðri og færð…það tókst.

Brynjar verður barinn með hamri ef hann hættir ekki sínum kjánabröndurum sem láta mig líta út eins og kjána.

Hver hefði trúað því að ég myndi vakna á sunnudagsmorgni til þess að mæta í ræktina…oooo jú jú það gerðist!

Ég get stundum verið svolítið bitur og ákvað því að smella þessari gömulu grein hérna inn til þess að geta velt mér upp úr því sem í vændum er í borginni.

Smellið hér

…Hefði ekki bara verið hægt að láta Degi í té sundkort og frítt á söfn borgarinnar?

Svo hefði nýr meirihluti nú getað sparað krónurnar fyrir Reykvíkinga með því að láta Villa taka fyrri hlutann af tímbilinu sem þeir Ólafur skipta með sér.

Mikið svakalega er ég fegin að vera ekki skráð til heimilis í Reykjavík, ekki það að þetta er örugglega ekkert mikið betra í Hfj. þar sem ég er skráð og ekki hefur hún Sigrún og hennar fólk á Akureyri verið að gera góða hluti.

Ólafur helminginn af tímabilin og Villi hinn helminginn. Burt með þetta skítapakk!

Burt með allt sem kallast borgarstjórn og bara fá framkvæmdastjóra, hæfasta manninn í starfið (bara á meðan það er ekki Árni Mathisen eða Össur Skarphéðinsson sem ráða í starfið.)

Þetta  fólk sem er í sandkassaleik í ráðhúsinu mætti kannski eyða tíma sínum í að gera eitthvað fyrir þessa blessuðu höfuðborg okkar annað en að plotta um að velta hvoru öðru úr sessi.

Skammist ykkar.

…Var búin að vinna kl:17:30, kem heim tek aðeins til og kl: 18:10 hringir Brynjar í mig til þess að segja mér að kl:19:00 verði tilkynnt um nýjan borgarstjóra í Reykjavík og það Ólaf F. Magnússon af öllum. Við fáum að sjá eitthvað annað á Kjarvalsstöðum í kvöld en niðurlúta sjálfstæðismenn.

Það voru fleiri fréttir, það er búið að jarða Bobby Fischer. Hann var jarðaður á Suðurlandi í einhverri sveitasókn og einungis tvær manneskjur viðstaddar, Garðar Sverrisson og kærastan hans Bobby. Ekki einu sinni Sæmi rokk var á staðnum og vissi örugglega ekki af þessu. Sóknarpresturinn hafði ekki einu sinni hugmynd um þetta.

Eins og ég segi…maður rétt bregður sér frá.

Þær eru byrjaðar að skjóta í vinnunni, sem væntanlega þýðir að nú fer að fara í hönd bloggkeppni eða eitthvað álíka. Mun ég án efa “tapa” þeirri keppni.

Fékk símtal í gær frá Gallup og ég eeeeeelska að fá símtöl frá Gallup, þetta var nú bara stutt og tengdis vali VR á fyrirtæki ársins ásamt launakönnun.

Í því sem því samtali er að ljúka byrjar Gallup að hringja á hinni línunni. Ég dríf því í að losa mig þann fyrri svo ég nái nú örugglega þeim seinni og þar komst ég feitt, fékk að lýsa yfir skoðunum mínum á Kaupþingi og Íslandspósti og váááá hvað það var ljúft, fékk reyndar spurningu um hvort ég styddi ríkisstjórnina, gat ekki svarað þeirri spurningu.

Byrjaði á fitubollunámskeiði um miðjan mánuðinn, fékk harðsperrur dauðans og Fóa Feykirófa hafði mjög gaman að því.

Karen Andrea átti leið á norðurland fyrir nokkru síðan, við erum nú búnar að ætla að reyna að hittast í einhver 3 ár en það hafðist ekki fyrr en við vorum komnar sitthvoru megin á landið.

Það var svakalega gaman að hitta hana, gátum spjallað alveg heilmikið um “gömlu” dagana. Vildi reyndar ungur finnskur drengur endilega tylla sér hjá okkur þar sem hann átti enga vini á Ísland. Við bentum honum kurteisislega á að því miður værum við ekki í leit að nýjum vinum þetta kvöld heldur að reyna að endurnýja gömul vináttusambönd. Hann fór í fýlu.

Reunion á dagskrá hjá ‘82 árganginum úr Hólabrekku. Mun því miður ekki mæta á það, enda kannski ekkert geypilega spennt, en frétti þó að því að sumir væru svo spenntir að þeir ætluðuð að fljúga heim frá Englandi til þess að missa ekki af þessu viðburði. Ég trompa þessa samkomu bara eftir 10 ár.

Við hérna í vinnunni erum á leið í skemmtiferð (skemmtiferð? Hljómar eins og við séum sjötugar í kvenfélaginu Baldursbrá) erum í það minnsta á leið á Mývatn á Sel hótel, þar sem við ætlum að eta og hafa gaman. Fara í go-kart og skeifukast á frosnu Mývatni.

Hugsa nú eiginlega til þess með svolítilli skelfingu að þegar ísinn gefur sig undan mér (fitubollunámskeiðið verður ekki alveg búið að kikka inn þarna) þá eru líklegustu bjargvættirnir mínir Jóhanna eða Erla, Jóhanna verður með hvítvínsflösku með röri í höndinni og veit ég að henni verður ekki sleppt til að hífa mig upp og Erla mun verða máttlaus af hlátri og ekki hafa neina burði til björgunar. Býst við að vera með plastkút bara með mér.

Gott í bili, ætti að duga fyrir Erlu hina ýtnu.